Tenglar

26. maí 2009 |

Menningarráð Vestfjarða veitir styrki til 48 verkefna

Fyrri styrkjaúthlutun Menningarráðs Vestfjarða á árinu 2009 fer fram í Edinborgarhúsinu á Ísafirði á fimmtudag, 28. maí, og hefst athöfnin kl. 16. Verða þar afhent vilyrði um styrki frá Menningarráði en alls eru veittir styrkir til 48 verkefna að þessu sinni á bilinu 50 þúsund til 1,4 milljónir, samtals að upphæð 21 milljón. Umsóknir sem bárust voru 89 og var samtals beðið um rúmar 72 milljónir í verkefnastyrki. Styrkirnir fara til fjölbreyttra verkefna sem sýna glöggt þann kraft, frumkvæði og nýsköpun sem einkenna vestfirskt menningarlíf. Verkefni sem byggjast á samstarfi ólíkra aðila eru áberandi í hópi þeirra verkefna sem styrkt eru að þessu sinni, en sérstök áhersla var lögð á samvinnu og samstarf við úthlutun, segir í tilkynningu frá Jóni Jónssyni menningarfulltrúa Vestfjarða.

 

Öllum styrkumsóknum sem bárust hefur verið svarað í tölvupósti á uppgefin netföng með niðurstöðu hvað varðar einstakar umsóknir. Heildarlisti um styrkt verkefni verður birtur á vef Menningarráðsins og sendur fjölmiðlum eftir athöfnina á fimmtudag. Menningarráð Vestfjarða mun næst auglýsa eftir umsóknum um styrki í haust.

 

Athöfnin er opin öllum og sveitarstjórnarmenn og þeir sem standa í eldlínunni í menningarstarfi á Vestfjörðum eru sérstaklega boðnir velkomnir. Á dagskrá eru erindi og afhending styrkja og í lokin á þessari formlegu athöfn verður boðið upp á léttar veitingar.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31