Tenglar

19. mars 2011 |

Menningarráð auglýsir eftir umsóknum um styrki

Jón Jónsson á Kirkjubóli, menningarfulltrúi Vestfjarða.
Jón Jónsson á Kirkjubóli, menningarfulltrúi Vestfjarða.
Menningarráð Vestfjarða auglýsir eftir umsóknum um styrki til menningarverkefna á grundvelli samnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við Fjórðungssamband Vestfirðinga. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Vestfjörðum. Á síðustu þremur árum hefur Menningaráð Vestfjarða úthlutað samtals rúmlega 120 milljónum til vestfirskra menningarverkefna.

 

Áherslur við fyrri úthlutun 2011

 

Hægt er að sækja um stuðning frá Menningarráði Vestfjarða við hvers kyns menningarverkefni, svo framarlega að umsókn eða verkefni stangist ekki á við úthlutunarreglur sem samþykktar eru við hverja úthlutun. Menningarráð Vestfjarða hefur ákveðið að við fyrri úthlutun ársins 2011 verði horft sérstaklega til verkefna sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:

 

          · Verkefni sem efla samstarf á sviði menningarmála á Vestfjörðum.

          · Verkefni sem stuðla að nýsköpun og fjölbreytni í menningartengdum verkefnum.

          · Verkefni sem fjölga atvinnutækifærum á sviði menningar.

          · Menningarstarfsemi sem styður við ferðaþjónustu.

          · Verkefni sem stuðla að þátttöku barna og unglinga í listsköpun og menningarstarfi.

 

Umsóknarfrestur rennur út fimmtudaginn 14. apríl. Úthlutun fer fram í maí. Fyrirvari er gerður um undirritun nýs menningarsamnings milli ríkisvaldsins og Fjórðungssambands Vestfirðinga fyrir þann tíma.

 

Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Vestfjarða á viðeigandi eyðublöðum eða í gegnum umsóknarform sem nálgast má á vef Menningarráðsins - www.vestfirskmenning.is - undir tenglinum Styrkir. Umsækjendur eru eindregið hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur Menningarráðs á sama stað.

 

Allar nánari upplýsingar veitir Jón Jónsson, menningarfulltrúi Vestfjarða, í síma 891 7372 eða í netfanginu menning@vestfirdir.is.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31