Tenglar

16. febrúar 2011 |

Menningartengd ferðaþjónusta: Ráðgjöf og námskeið

Sólveig Dagmar Þórisdóttir.
Sólveig Dagmar Þórisdóttir.
Sólveig Dagmar Þórisdóttir, menningarmiðlari, grafískur hönnuður og ökuleiðsögumaður, er núna gestur í Skelinni, lista- og fræðimannadvöl Þjóðfræðistofu á Hólmavík. Hún býður ferðaþjónum á Ströndum og í næstu héruðum upp á námskeiðið „Mennta- og menningartengd ferðaþjónusta á Ströndum og Vestfjörðum“ í tengslum við uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu. Á námskeiðinu mun Sólveig leiða hugmyndavinnu með aðaláherslu á vetrartímann. Meðan á dvöl hennar á Hólmavík stendur, eða fram á laugardag, veitir hún einnig einstaklingsráðgjöf til ferðaþjóna. Hægt er að panta hjá henni viðtalstíma í Skelinni í síma 863 0360.

 

Námskeiðið fer fram annað kvöld, fimmtudaginn 17. febrúar, og hefst kl. 20. Það verður haldið í Grunnskólanum á Hólmavík, Skólabraut 20-22. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31