Tenglar

13. febrúar 2011 |

Menningartengd ferðaþjónusta á Vestfjörðum

Fyrir nokkrum dögum gekk Áki Guðni Karlsson þjóðfræðingur frá lokaverkefni sínu til meistaraprófs í þjóðfræði við Háskóla Íslands. Ritgerð hans ber heitið Menningartengd ferðaþjónusta á Vestfjörðum. Í tölvupósti að Reykhólum segir höfundur m.a.: „Mig langar til að þakka ykkur kærlega fyrir veitta aðstoð vegna meistaraverkefnis míns í þjóðfræði og sendi ykkur hérna tengil á ritgerðina.“

 

Í útdrætti í upphafi segir m.a.: „Ritgerðin fjallar um þróun menningartengdrar ferðaþjónustu á Vestfjörðum síðustu áratugi. Í rannsókninni er grafist fyrir um ástæður þess að fjöldi safna, setra og sýninga á Vestfjörðum hefur nær fjórfaldast á rúmum tíu árum. Forsendur þessarar þróunar eru raktar til þess tíma þegar fyrst var farið að ræða erindi íslenskrar menningarsögu í ferðaþjónustu snemma á 10. áratug 20. aldar og þess hvernig opinberu fjármagni til menningarmála hefur í auknum mæli verið beint í farveg verkefnastyrkja á síðustu tveimur áratugum.“

 

Hér er tengillinn á ritgerðina (pdf-skjal, 168 blaðsíður). Meðfylgjandi mynd er úr ritgerðinni.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31