Tenglar

11. janúar 2011 |

Merkur vegarkafli að syngja sitt síðasta

Skálanes. Mynd af vefnum visir.is.
Skálanes. Mynd af vefnum visir.is.
1 af 2
Vegarkafli sem skipar sess í kvikmyndasögu Íslands verður aflagður í sumar. Þetta er jafnframt einn síðasti kafli þjóðvegakerfisins sem liggur um hlaðið á sveitabæ. Vegarkaflinn liggur um Skálanes í Reykhólahreppi, milli Kollafjarðar og Gufufjarðar. Á þessari leið er vegurinn gamli svo mjór og hlykkjóttur og með svo mörgum blindbeygjum, að mælst er til þess að ekki sé ekið þarna nema á þrjátíu kílómetra hraða. Vegurinn er svo nálægt húsunum á Skálanesi að bílar nánast sleikja gamla söluskálann og bensínafgreiðsluna sem Kaupfélag Króksfjarðar (KKK) rak þarna allt fram til ársins 2000.

 

Fjallað er um þetta á fréttavefnum visir.is í gær. Þar segir:

 

Staðurinn er hluti af kvikmyndasögu Íslands því þarna voru fyrir 20 árum tekin upp atriði í kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Börn náttúrunnar, þegar kaupfélagsútbúið var ennþá í rekstri. Gísli Halldórsson og Sigríður Hagalín léku aðalhlutverkin eftirminnilega og þetta er eina íslenska kvikmyndin í fullri lengd sem tilnefnd hefur verið til Óskarsverðlauna.

 

En nú fer hver að verða síðastur að aka um gamla veginn þarna. Vegagerðin hefur ákveðið að leggja nýjan þriggja kílómetra langan vegarkafla fjær bænum og ofar í hlíðinni, malbikaðan, beinan og breiðan samkvæmt nútímastöðlum. Tilboð verða opnuð í næstu viku og á nýi vegurinn að vera tilbúinn innan tíu mánaða, fyrir 1. nóv. næstkomandi.

 

Sjá einnig:

Vefur Reykhólahrepps 29. des. 2010:  Vegarkafli í útboð

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31