24. apríl 2010 |
Messa á Staðarhóli í upphafi héraðsfundar
Héraðsfundur Vestfjarðaprófastsdæmis árið 2010 er að þessu sinni haldinn í Reykhólaprestakalli. Fundurinn hefst með almennri guðsþjónustu kl. 11 á morgun, sunnudaginn 25. apríl, í kirkjunni á Staðarhóli í Saurbæ. Sr. Hildur Inga Rúnarsdóttir á Þingeyri predikar en sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir sóknarprestur í Reykhólaprestakalli þjónar fyrir altari. Organisti að þessu sinni er Viðar Guðmundsson en kór Reykhólaprestakalls leiðir sönginn.
Reykhólaprestakall
Reykhólaprestakall
Kristjón Sigurðsson, sunnudagur 25 aprl kl: 11:00
Staðarhólskirkja í Saurbæ stendur á hól sem ýmisst er kallaður Kirkjuhóll eða Kirkjuhvoll og heitir Kirkjuhvoll áður ýmisst Skollhóll eða Melrakka-hvoll
Staðarhóll er í miðjum Staðarhólsdal suður frá Kirkjuhvoli. Þar stendur íbúðarhús sem er nú í eyði.
Sjá hér tilvitnun í sögu Staðarhólskirkju.
,,Á síðasta fundi sem haldin var í janúar 1898 um þetta byggingarmál bar Einar Guðbrandsson bóndi á Hvítadal, fram þá tillögu til samkomulags, að sú hin nýja Staðarhólskirkja verði reist á Skollhóli sem þá var svo kallaður. Í Sturlungu bar hann nafnið Melrakka-hvoll en hefur nú hlotið heitið Kirkjuhvoll.
Þessari tillögu var í fyrstu misjafnlega tekið af fundarmönnum. En þá kvaddi sér hljóðs skólastjóri Torfi Ólafsson í Ólafsdal, og mælti með tillögu Einars af rökvísi, skörungsskap, stillingu og festu eins og honum var jafnan lagið, með þeim árangri að samkomulag náðist.“ Ágrip af sögu Staðarhólskirkju í tilefni 50 ára afmælis hennar eftir Ólaf Skagfjörð Ólafsson bónda á Þurranesi.