Tenglar

6. júlí 2012 |

Messan árvissa á Skálmarnesmúla í Múlasveit

Skálmarnesmúlakirkja sumarið 1959. Hún var vígð árið eftir og hafði verið hátt í áratug í smíðum.
Skálmarnesmúlakirkja sumarið 1959. Hún var vígð árið eftir og hafði verið hátt í áratug í smíðum.
1 af 4

Sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir sóknarprestur syngur hina árlegu messu í Skálmarnesmúlakirkju á Múlanesi kl. 14 á morgun, laugardag. Viðar leikur á harmonikkuna og kór Reykhólaprestakalls leiðir sönginn. Kaffi verður á eftir í sumarbústaðnum þeirra Þuríðar og Finnboga.

 

Myndirnar af og úr kirkjunni á Skálmarnesmúla sem hér fylgja eru úr skjalasafni Húsameistara ríkisins hjá Þjóðskjalasafni Íslands og voru teknar 10. júlí 1959, árið áður en kirkjan var vígð. Bygging hennar tók hátt í áratug enda var þá ekki kominn bílvegur út Múlanesið. Efnið til hennar var því flutt á bátum og síðan á klakk og kerru heim á staðinn, að því er fram kemur í riti séra Ágústs Sigurðssonar frá Möðruvöllum um kirkjustaði á Vestfjörðum (Í manns munni, Barðastrandarsýsla. Vestfirska forlagið 2005).

 

Sjá einnig hér frétt og fjölda mynda frá messunni á Skálmarnesmúla sumarið 2009 þegar herra Karl Sigurbjörnsson vísiteraði.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31