Messan árvissa á Skálmarnesmúla í Múlasveit
Sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir sóknarprestur syngur hina árlegu messu í Skálmarnesmúlakirkju á Múlanesi kl. 14 á morgun, laugardag. Viðar leikur á harmonikkuna og kór Reykhólaprestakalls leiðir sönginn. Kaffi verður á eftir í sumarbústaðnum þeirra Þuríðar og Finnboga.
Myndirnar af og úr kirkjunni á Skálmarnesmúla sem hér fylgja eru úr skjalasafni Húsameistara ríkisins hjá Þjóðskjalasafni Íslands og voru teknar 10. júlí 1959, árið áður en kirkjan var vígð. Bygging hennar tók hátt í áratug enda var þá ekki kominn bílvegur út Múlanesið. Efnið til hennar var því flutt á bátum og síðan á klakk og kerru heim á staðinn, að því er fram kemur í riti séra Ágústs Sigurðssonar frá Möðruvöllum um kirkjustaði á Vestfjörðum (Í manns munni, Barðastrandarsýsla. Vestfirska forlagið 2005).
Sjá einnig hér frétt og fjölda mynda frá messunni á Skálmarnesmúla sumarið 2009 þegar herra Karl Sigurbjörnsson vísiteraði.