Tenglar

25. febrúar 2016 |

Mikið lesið í Reykhólahreppi eins og áður

Lestrarhestar.
Lestrarhestar.

Eftir fjórar æsispennandi lestrarvikur eru úrslit ljós í landsleiknum Allir lesa, en íbúar Reykhólahrepps höfnuðu í fimmta sæti þegar horft var á lestur eftir búsetu. Meðallestur þátttakenda í sveitarfélaginu voru tæpir 19 klukkutímar á fjögurra vikna tímabili!

 

Þannig hefst póstur sem verkefnisstjórinn Bergrún Íris sendi Reykhólavefnum. Síðan segir þar:

 

Landsleikurinn vakti strax mikla athygli og bættist fjöldi nýrra lesenda í hóp þeirra sem tóku þátt í fyrstu keppninni árið 2014. Á þeim fjórum vikum sem leikurinn stóð skráðu 1.802 manns í 237 liðum alls lestur upp á um 54.800 klukkustundir, sem samsvarar ríflega sex árum af samfelldum lestri. Alls voru 4.586 nýjar bækur skráðar á vefinn, en gagnagrunnur hans vex sífellt og telur nú tæplega 15.000 íslenskar og erlendar bækur.

 

Lestur eftir búsetu

Vestmannaeyingar hófu leik af miklu kappi, enda vildu þeir verja sigurinn frá því síðast. Strax í byrjun veittu Blöndósingar Eyjamönnum harða samkeppni en þegar halla fór á seinni hlutann reyndust öflugustu lestrarhesturnir koma frá sveitarfélaginu Ölfusi, en þar var meðallestur 26 klukkutímar. Eins og í fyrra hafnaði Hveragerði í öðru sæti en Vestmanneyingar fylgdu á eftir í því þriðja.

 

Lestrardagbókin opin áfram

Þótt landsleiknum 2016 sé nú formlega lokið geta allir nýtt sér áfram vefinn allirlesa.is og haldið þar sína persónulegu lestrardagbók. Vefurinn er öllum opinn allt árið um kring og er skemmtileg leið fyrir alla að halda utan um lestrarvenjur sínar. Landsleikur í lestri fer svo aftur fram að ári.

 

Aðstandendur landsleiksins eru Miðstöð íslenskra bókmennta og Reykjavík Bókmenntaborg.

 

Því má svo bæta hér við, að Reykhólahreppur var líka meðal efstu sveitarfélaga í keppninni í fyrra.

 

Keppnin að byrja: Allir lesa á þorranum

Lestrarhestar: Mæðgur þrjár frá Mýrartungu

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31