Tenglar

23. ágúst 2013 | vefstjori@reykholar.is

Mikill fjöldi umsókna en ekki úr heimabyggð

Þörungaverksmiðjan hf. Ljósm. ÁG.
Þörungaverksmiðjan hf. Ljósm. ÁG.

„Fjöldi umsókna er langt umfram það sem við bjuggumst við,“ segir Garðar Jónsson, framleiðslustjóri Þörungaverksmiðjunnar hf. á Reykhólum, en í síðustu viku auglýsti verksmiðjan hér á vefnum eftir fólki til starfa. Borist hafa 64 umsóknir, að langmestum hluta af Reykjavíkursvæðinu.

 

„Væntingar okkar þegar við auglýstum voru að vekja forvitni Reykhólabúa og annarra sveitunga á störfunum hér og hvetja þá til að koma og vinna hjá okkur, en því miður höfum við ekki fengið neina umsókn úr sveitarfélaginu og ekki úr nærsveitum nema frá Hólmavík og Búðardal,“ segir Garðar.

 

„Því miður voru undirtektir hér á svæðinu nú ekki meiri en þetta. Ég harma það vegna þess að ég hefði gjarnan viljað fá fólk héðan, en ég reikna þá bara með að allir hér hafi nóg við að vera, að minnsta kosti vona ég að það sé ástæðan,“ segir hann.

 

Garðar segir að nokkrar umsóknir hafi borist frá útlöndum frá mönnum sem hafi einhvern veginn rekist á þetta. „Menn vilja ólmir koma, einn sagði að við þyrftum bara að borga fyrir hann flugfarið til Íslands og þá kæmi hann umsvifalaust.“

 

Enn er verið að fara yfir umsóknirnar og ekki búið að ráða í störfin, að sögn Garðars. Þær eru frá fólki í hinum og þessum starfsgreinum og margar frá vel menntuðu fólki.

 

„Ég er ekki síður að leita eftir kvenfólki til starfa en karlmönnum, þetta eru störf fyrir konur jafnt sem karla. Ég skora á konur á Reykhólum og hér í kring sem hafa hug á að fara að vinna utan heimilis að skoða þetta í alvöru,“ segir hann.

 

Aðspurður hvort viðvarandi húsnæðisskortur á Reykhólum sé ekki fjötur um fót við ráðningar á aðfluttu fólki segir Garðar: „Það eru þrjár íbúðir hér á svæðinu sem ég gæti væntanlega fengið afnot af fyrir starfsfólk, ef á þarf að halda. Áður en við auglýstum kannaði ég möguleika á slíku því að ég vissi um þetta vandamál.“

 

Athugasemdir

Torfi, laugardagur 24 gst kl: 07:13

Ástæðan er einföld, á Reykhólum búa einfaldlega ekki nógu margir og þó svo að fólk vilji koma til okkar er ekkert húsnæði... við þessu þarf að bregðast en einhverra hluta vegna benda menn hvern á annan...

Ingvar Samuelsson, laugardagur 24 gst kl: 22:26

Í dag eru sjö íbúðir í og við Reykhóla sem standa auðar, svo að mér finnst að það sé önnur ástæða fyrir því að fólk vill ekki vinna í Þörungarverksmiðjunni og víðar.

Bjössi, sunnudagur 25 gst kl: 00:52

hvar eru 7 íbúðir Ingvar ?

Torfi, sunnudagur 25 gst kl: 00:53

nú jæja,, þá er þetta ekkert vandamál, er það nokkuð?? :-)

Torfi, sunnudagur 25 gst kl: 00:54

Bjarkarlundur er með 7 herbergi laus!!! :-)

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31