25. nóvember 2019 | Sveinn Ragnarsson
Mikilvægi endurskins á yfirhöfnum
Orðsending frá lögreglunni á Vestfjörðum.
Við hjá lögreglunni á Vestfjörðum viljum hvetja sem flesta, gangandi vegfarendur, börn sem fullorðna, til að vera vel sýnileg svona í svartasta skammdeginu. Þetta skiptir gríðarlegu máli hvað umferðaröryggi varðar, hvort heldur í dreifbýli eða í þéttbýlinu.
Við höfum vakið athygli á þessu á facebooksíðu lögreglunnar á Vestfjörðum og eins hafa lögreglumenn í umferðareftirliti vakið athygli fólks sem er dökkklætt án endurskinsmerkja á þessum mikilvæga þætti.
Okkur langar til að biðja sveitarfélögin öll í umdæminu að taka þátt í því að vekja athygli íbúanna á þessu og hvetja til aukins sýnileika.