Tenglar

14. apríl 2016 |

Milljón frá Kötlu vegna björgunarbátsins

Báturinn sem Heimamenn kaupa.
Báturinn sem Heimamenn kaupa.

Kvenfélagið Katla í Reykhólahreppi ákvað á félagsfundi í fyrrakvöld að færa Björgunarsveitinni Heimamönnum einnar milljónar króna styrk vegna kaupanna á björgunarbátnum sem hér hefur ítarlega verið greint frá, og fylgibúnaði vegna hans. Með þessu vilja Kötlukonur sýna björgunarsveitinni þakklæti og virðingu vegna starfsins fyrir fólkið í sveitarfélaginu. „Að hafa starfandi björgunarsveit í hreppnum veitir okkur aukið öryggi.“

 

Stjórn Kötlu vill jafnframt minna á, að margt smátt gerir eitt stórt. Ef fleiri vilja leggja sveitinni lið, þá eru bankaupplýsingarnar 0153-05-134281 og kennitalan 430781-0149. 

 

Í framhaldi af þessu má rifja upp, að ágóðinn af veitingasölu Kötlu á jólamarkaðinum í Króksfjarðarnesi rann til kaupanna á bátnum.

 

Björgunarbáturinn: Lokaspretturinn að hefjast

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31