19. febrúar 2015 |
Minningarathöfn syðra og útför á Reykhólum
Gylfi Helgason.
Útför Gylfa Helgasonar, fyrrverandi skipstjóra á Reykhólum, sem andaðist 6. febrúar, verður gerð frá Reykhólakirkju kl. 14 á laugardag. Minningarathöfn verður í Friðrikskapellu að Hlíðarenda í Reykjavík kl. 14 á morgun, föstudag. Hlíðarendi var einmitt fæðingarstaður Gylfa heitins.