13. febrúar 2012 |
Minnt á almennan umræðufund hjá Skruggu
Stjórn Leikfélagsins Skruggu í Reykhólahreppi minnir á almennan félagsfund sem haldinn verður kl. 20 í kvöld, mánudag, í anddyri íþróttahússins á Reykhólum. Fundarefni er vorstarfið. Kaffi á könnunni. Allir velkomnir, bæði félagsfólk og aðrir sem hafa áhuga.