15. maí 2013 | vefstjori@reykholar.is
Minnt á framhaldsdeildina á Hólmavík
Enn skal minnt á framhaldsdeildina - dreifnámið svokallaða - á vegum Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra sem byrjar á Hólmavík í haust. Þetta stendur ekki síður fólki í Reykhólahreppi til boða en Strandamönnum og er ekki eingöngu ætlað þeim sem eru að ljúka grunnskóla heldur fólki á öllum aldri. Gert er ráð fyrir að þarna verði hægt að stunda nám fyrstu tvö árin í framhaldsskóla en hægt er að skrá sig í einstök fög eða fullt nám eftir því sem hentar hverjum og einum.
Á myndinni má sjá fyrirhugað námsframboð fyrstu fjórar annirnar. Auk þess geta nemendur skráð sig í fleiri áfanga í fjarnámi.
Nánari upplýsingar og skráning hjá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.