24. ágúst 2011 |
Minnt á opna húsið hjá Vegagerðinni
Minnt skal á opið hús Vegagerðarinnar í Reykhólaskóla núna í kvöld, miðvikudag, frá kl. 17 til 21. Þar verður kynnt fyrirhuguð vegagerð milli Eiðis í Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði. Að mestu er þessi leið innan Reykhólahrepps en vestasti hlutinn tilheyrir Vesturbyggð. Framkvæmdin ásamt mati á umhverfisáhrifum hennar verður kynnt jafnframt því sem tekið verður við ábendingum og athugasemdum.