13. desember 2013 | vefstjori@reykholar.is
Minnt á skötumessu Lions á Þorláksmessu
Skötuveisla Lionsfólks verður að venju á Þorláksmessu í matsal Reykhólaskóla og húsið opnað kl. 12. Enginn posi frekar en endranær, verðið kemur síðar. Allir eru velkomnir í skötuna, hvort sem þeir eru í Lions eða ekki. Skötuveislan er ein af fjáröflunarleiðum Lionsfólks.