26. apríl 2016 |
Minnt á súpufundinn í Tjarnarlundi
Opinn súpufundur um gerð sameiginlegs svæðisskipulag Reykhólahrepps, Dalabyggðar og Strandabyggðar verður haldinn í Tjarnarlundi í Saurbæ í kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 17.30 til 21.30. Þar verður verkefnið kynnt og spurningum svarað, en síðan unnið í hópum um ferðaþjónustu, matvælaframleiðslu og aðra framleiðslu úr auðlindum svæðisins.
Vinsamlegast skráið þátttöku hjá Herborgu Árnadóttur í netfanginu herborg@alta.is eða í síma 582 5000.