16. júní 2016 |
Minnt á viðburði ...
Stubbkvissið á Báta- og hlunnindasýningunni á Reykhólum sem hér var greint frá verður í kvöld. „Er komin með fullt af flottum spurningum sem eru mjög auðveldar ef þið þekkið þættina eða myndirnar,“ segir Jóhanna Ösp tómstundafulltrúi. Síðan er hátíðin í Bjarkalundi á morgun, þjóðhátíðardaginn 17. júní, og kannski mætti svo líta inn í Nesi á eftir.
Því fleira fólk sem kemur saman á hverjum stað, þeim mun skemmtilegra.