Tenglar

1. desember 2010 |

Mjög fjölsótt leikhúskvöld á Reykhólum

Sólveig Sigríður Magnúsdóttir - betur þekkt sem Solla Magg - formaður Leikfélagsins Skruggu í Reykhólahreppi vill koma á framfæri þakklæti vegna þess hve allir stóðu sig vel á kaffihúskvöldi (leikhúskvöldi) félagsins á Reykhólum um síðustu helgi og hversu ótrúlega margir sóttu þennan viðburð. Solla segir:

 

Stelpurnar þær Ella, Eydís, Aldís og Fanney stóðu sig svo vel í að lesa upp jólasveinaljóð sem var bara yndislegt. Hjartans þakkir fær Áslaug fyrir að leiðbeina þeim og velja með þeim þetta ljóð.

 

Egill las upp Lepplúðavísur og Andrea las Bréfið hennar Stínu eftir Davíð Stefánsson.

 

Síðan var leikþátturinn Afi kemur í heimsókn þar sem leikararnir stóðu sig afar vel og mikið hlegið. Egill, Eyvindur, Torfi og Andrea léku í þessum þætti.

 

Hanna og Gulla sáu um kaffiveitingar og það var ekki af verri endanum - eplakaka með rjóma og piparkökur - og þessu var svo skolað niður með góðum kaffisopa.

 

Leikfélagið Skrugga vill þakka þeim sem hjálpuðu til fyrir kaffihúskvöldið. Ásu og Gullu fyrir lánið á sófa og stól og Steinunni og Áslaug fyrir saumaskapinn og Rebekku fyrir smíðina á glugganum. Á kaffihúskvöldið mættu 63 en með öllum voru 75 á þessu kvöldi.

 

- Bestu þakkir, Solla Magg, formaður Leikfélagsins Skruggu.

 

Því skal bætt við, að Solla Magg var leikstjóri en Fjóla Benediktsdóttir á Tindum tók meðfylgjandi myndir. Smellið á myndirnar til að stækka þær.

 

Athugasemdir

Björg Karlsdóttir, mivikudagur 01 desember kl: 18:08

Það má með sanni segja að þetta var skemmtilegt kvöld og öllum sem að því stóðu til sóma. Það er gaman að sjá unga sem eldri vinna saman að því að gera öðrum glatt í geði. Takk fyrir mig. Björg

Guðrún Guðmundsdóttir, fimmtudagur 02 desember kl: 14:51

Frábært kvöld, takk fyrir okkur.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31