Tenglar

5. september 2008 |

Mjög smurt á reikninga að mati skoðunarmanna

„Það vekur athygli að þetta er áþekkt tímakaup og Landhelgisgæslan tekur fyrir dýptarmælingar þar sem að líkindum er verið að leggja til skip í mælingarnar", segir í athugasemdum kjörinna skoðunarmanna reikninga Fjórðungssambands Vestfirðinga um þóknun lögmannsstofu nokkurrar. Skoðunarmennirnir, þeir Guðmundur Björgmundsson og Ólafur B. Halldórsson, segja að góð regla sé á bókhaldi sambandsins, en á það skorti mjög að þeir sem selja sambandinu þjónustu sína háu verði geri grein fyrir reikningum sínum. Þetta kemur fram á fréttavefnum bb.is á Ísafirði. Þar er umsögn skoðunarmannanna birt, en hún er á þessa leið:

 

„Undirritaðir hafa lokið endurskoðun bókhalds Fjórðungssambands Vestfirðinga. Góð regla er á öllum fylgiskjölum og skilmerkilega gerð grein fyrir útlögðum kostnaði. Það sem undirrituðum þykir ábótavant eru greinargerðir þeirra aðila sem selja sambandinu þjónustu sína á háu verði. Er hér um að ræða ýmsa sérfræði- og ráðgjafaþjónustu. Vera kann að þessir aðilar hafi gert forystumönnum Fjórðungssambandsins nánari grein fyrir verkum sínum, en reikningar þeirra bera það ekki með sér. Flestir þessir reikningar varða staðarval olíuhreinsistöðvar. Ósundurliðaður reikningur „auglýsingakostnaður" fyrir 240.000 frá ráðgjafafyrirtæki er að okkar mati ófullnægjandi. Ýmis ráðgjafafyrirtæki gera reikninga fyrir hundruð þúsunda án þess að gera neina grein fyrir tímafjölda sem í þjónustuna er lögð. Lögmannsstofa ein tilgreinir þó að klukkustundar vinna kosti um 18.000 kr. með virðisaukaskatti og rúmlega dagsverk kosti því um kvartmilljón. Það vekur athygli að þetta er áþekkt tímakaup og Landhelgisgæslan tekur fyrir dýptarmælingar þar sem að líkindum er verið að leggja til skip í mælingarnar. Reikningar hótela í Reykjavík mættu gjarnan vera útgefnir á íslensku til íslenskra viðskiptavina.

Undantekning til fyrirmyndar er Náttúrustofa Vestfjarða þar sem skilmerkilega er gerð grein fyrir vinnustundum með dagsetningum og taxta útseldrar vinnu er að mati undirritaðra stillt í hóf. Við teljum að gera eigi þá kröfu til þeirra aðila sem titla sig sérfræðinga og ráðgjafa að þeir geri skilmerkilega grein fyrir hvað þeir eru að vinna, hvenær og hver sé þeirra útseldi vinnutaxti."

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31