Tenglar

8. júní 2015 |

Móðurlaust folald í garði við hús

Alma á Hafrafelli og folaldið láta vel hvort að öðru.
Alma á Hafrafelli og folaldið láta vel hvort að öðru.
1 af 6

Þegar maður nokkur á Reykhólum leit út í gærmorgun sá hann ekki betur en sauðkind væri á beit í garðinum kringum hús Guðrúnar Guðmundsdóttur og Björns Fannars Jóhannessonar að Hellisbraut 50. Komu þá í hugann garðarollurnar svokölluðu sem garðeigendum á Ísafirði þóttu talsvert hvimleiðar fyrir kannski tuttugu árum eða þar um bil og sóttust mjög eftir því að éta fögur sumarblóm á næturþeli. En svo reisti „kindin“ í garðinum hjá Guðrúnu og Fanna höfuðið, og þá leyndi sér ekki að þetta var folald.

 

Blessað folaldið missti móður sína í síðustu viku. Þá var það fyrst haft í fjárhúsunum hjá Tuma bónda á Reykhólum en var síðan flutt í garðinn hjá Guðrúnu og Fanna. Sveitungar voru mjög hjálplegir. Má þar nefna að Gústaf og Herdís á Miðjanesi og Daníel á Ingunnarstöðum sáu folaldinu fyrir mjólk. Eins og vænta mátti gerðu margir sér ferð í garðinn við Hellisbrautina til að skoða folaldið. Á myndunum má sjá að blessað litla folaldið undi sér vel með börnum og fullorðnum.

 

Auglýst var á netinu eftir fósturmóður fyrir folaldið. Það bar tilætlaðan árangur og fór það í gær suður í Hafnarfjörð til fósturmömmu sinnar. „Nú vonum við bara að þetta gangi allt vel,“ segir Sólveig Guðmundsdóttir, systir Guðrúnar. Þess má geta, að folaldið hlaut nafnið Aris.

 

Atburðadagatal

« Ma 2026 »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31