21. mars 2013 | vefstjori@reykholar.is
Moltugerðin á Reykhólum að fara í gang
Pokar undir lífrænan úrgang til moltugerðar eru komnir á nokkur heimili á Reykhólum. Eftir páska munu allir geta fengið slíka poka í Hólakaupum. Þessir pokar eru sjálfir úr náttúruefni og verða að moltu eins og innihaldið. Við hliðið á gámasvæðinu neðan við Reykhóla eru komnar tunnur þar sem fólk skilar pokunum með lífræna úrganginum.
Í fyrradag kom Torfi Einarsson frá Gámaþjónustu Vesturlands vestur á Reykhóla til að kenna á moltugerðarbúnaðinn. Við það tækifæri voru meðfylgjandi myndir teknar.
► 18.03.2013 Moltugerðarstöð komin á Reykhóla
► 18.03.2013 4,7 tonn af frágengnu sorpi fóru í endurvinnslu