14. júní 2009 |
„Morðvopnið notað til að steikja hamborgara“
Bjarkalundur er ekki bara elsta sveitahótel á Íslandi heldur líka það frægasta. Pannan sem Gugga fékk í hausinn er ennþá notuð til að steikja hamborgara. Allt eins er og það var í sjónvarpsþáttunum. Þarna er matsalurinn og barinn, en svo virðist sem eldhúsið hafi mesta aðdráttaraflið enda gerðist þar örlagaríkasti atburðurinn þegar Gugga var slegin í hausinn með pönnu. Hótelstjórinn var þó ekki alveg sáttur við hvernig þáttaröðin endaði.
Þetta kom fram á Stöð 2. Smellið á myndina til að stækka fréttina sem birtist á vefnum visir.is.