Mörg eru veður á vegum í Reykhólahreppi
Myndirnar sem hér fylgja tók Sveinn Ragnarsson á Svarfhóli í Geiradal í Reykhólahreppi hinum nýja. Myndir nr. 1 og 2 tók hann á sama stað af þjóðveginum með réttu sólarhringsmillibili í gær og í dag. Þar má sjá hversu fljót hálkan er blessunarlega fljót að hverfa með asahlákunni. Mynd nr. 3 tók hann af „dálitlum“ vatnavöxtum í Geiradalnum. Þarna eru skurðir undir. Og Sveinn spyr: Hvaða eðlisfræðilögmál ræður því að vatnið stendur hærra en landið í kring?
Að mati umsjónarmanns þessa vefjar er Guðjón Dalkvist Gunnarsson á Reykhólum einna líklegastur allra manna í Reykhólahreppi til að svara ofangreindri spurningu með skynsamlegum hætti. Ellegar þá bara með einhverjum hætti.
Á myndum nr. 4 og 5 er Ólafur Einir Smárason frá Borg í Reykhólasveit á gröfu Verkloka ehf. að ræsa frá veginum vestan við Geiradalsá í vatnavöxtunum.
Dalli, rijudagur 30 desember kl: 12:00
Eðlisfræðin og þyngdarlögmálið eru oft afstæð. Við Svenni þekkjum vel, að þegar vínandi er settur í magann, virkar þyngdaraflið ekki lengur. Hann svífur upp í höfuð og truflar þá gjarnan ýmis skynfæri