Tenglar

26. september 2014 | vefstjori@reykholar.is

Mótmæla hækkun á matarskatti og lyfjaskatti

Kjaramálanefnd Landssambands eldri borgara (LEB) hefur fjallað um nýgerð fjárlög og áhrif þeirra á stöðu eldri borgara. Fyrst ber að nefna aðför að matarverði sem þar er lögð til. Það er algjör bjartsýni að mótvægisaðgerðir muni skila sér. Fyrir því er margra áratuga reynsla sem gleymist ekki. Þess vegna hafnar Kjaramálanefnd LEB allri umræðu um að hækka matarskattinn úr 7% í 12% og síðar 14% eins og einn ráðherrann tilkynnti í eldhúsdagsumræðum.

 

Þannig hefst ályktun sem formaður LEB, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir í Mýrartungu í Reykhólasveit, sendi vefnum til birtingar. Þar segir einnig:

 

Aðrar hækkanir sem boðaðar hafa verið eru hækkanir á lyfjum og því greiðsluþaki sem þar er. Því er alfarið hafnað, ekki síst þar sem við berum hæsta virðisaukaskatt á lyf sem finnst í samanburðarlöndum. Víða er enginn virðisaukaskattur á lyf eða þá mjög lágur.

 

Í frumvarpinu er ekki að finna neinar úrbætur fyrir fólk sem er eingöngu á TR-bótum, en þar hefur orðið gliðnun árum saman og nú á þessu ári um nokkur prósent.

 

Hækkun bóta um næstu áramót nær ekki að vinna á þessari þróun, þannig að fólk sem er á lægstu bótunum er almennt illa statt fjárhagslega.

 

Langvarandi umræða um Landspítalann og hvort eigi að byggja eða fresta er orðin gatslitin. Umræðan um að aldraðir teppi svo og svo mörg rúm eða fylli ganga er ómakleg, þar sem hvert þjóðfélag er upplýst um að öldruðum fjölgar og lífaldur lengist og því fylgja innlagnir á sjúkrahús. Umræðan sem líka fjallar um sífellt neyðarástand hefur slæm heilsufarsleg áhrif á eldri borgara og er mál að linni. Kostnaður við að gera út hverja nefndina á fætur annarri og breytingar á teikningum og deiliskipulagi kostar orðið tugi milljóna. Þeim peningum hefði verið betur varið í alvöru þarfagreiningu í upphafi. Því skorum við á stjórnvöld að vinna hratt að uppbyggingu nýs sjúkrahúss.

 

Eldra fólk vill búa við öryggi.

 

Í okkar velferðarsamfélagi hefur öryggi fólks verið skert.

 

- Kjaramálanefnd Landssambands eldri borgara.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31