Tenglar

9. mars 2017 | Sveinn Ragnarsson

Mottudagurinn er föstudagurinn 10. mars

 

 

Föstudaginn 10. mars. hvetur Krabbameinsfélagið alla landsmenn, konur og karla, til að halda upp á Mottudaginn með því að leyfa karlmennskunni að skína sem aldrei fyrr!

Á Mottudeginum látum við ímyndunaraflið ráða för og skörtum öllu mögulegu tengdu karlmanninum, fatnaði, höfuðfötum, gerviskeggi o.s.f. og hvetjum alla landsmen til að gera slíkt hið sama. Leyfum karlmennskunni að njóta sín þennan dag. Hvetjum vini, vandamenn og samstarfsfélaga að taka þátt í átakinu og ekki væri verra ef starfsmenn vinnustaða tækju sig saman og efndu til skemmtilegra leikja í tengslum við daginn! Hægt er að skoða nokkrartillögur hér. Krabbameinsfélagið hvetur hópa til að gera eitthvað skemmtilegt saman og láta mynda sig á ýmsan hátt og senda á mottumars@krabb.is eða setja á Facebooksíðu átaksins

Hjá Krabbameinsfélaginu er hægt að fá ýmislegt sem fólk getur notað til að skreyta sig á Mottudaginn. Þar á meðal gervimottur sem eru sex saman í pakka, mottuflaska, mottuboli, bindi, hálsbönd, mottuslaufu o.fl. Skoðaðu allar mottuvörururnar í netverslun Krabbameinsfélagsins. Einnig er hægt að koma við hjá okkur í Skógarhlíð 8 frá 8:30-16:00 og versla mottuvörur.

Mottumars er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum í körlum. Markmið átaksins í ár er að auka þekkingu á skaðsemi tóbaksnotkunar og hvetja þá karla sem nota tóbak að hætta.

Góða skemmtun!

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31