5. apríl 2012 |
Mottumars: Þörungaverksmiðjan hafði betur
Að mottumars loknum kom dálítill hópur saman í húsakynnum Reykhólahrepps í gærkvöldi í boði Ingibjargar Birnu sveitarstjóra. Tilefnið var að veita viðurkenningar sem hún hafði heitið fyrir mánuði, þegar hreppsnefnd og starfsmenn Reykhólahrepps skoruðu á starfsmenn Þörungaverksmiðjunnar í áheitasöfnun. Lið verksmiðjunnar (Team Thorverk) hafði þar betur og viðurkenningu fyrir fallegustu mottuna hlaut Björn Kristjánsson starfsmaður hennar.
Í báðum tilvikum voru afhent viðurkenningarskjöl. Björn var reyndar fjarri góðu gamni en Játvarður Jökull vinnufélagi hans tók við plöggunum fyrir hans hönd.
Samtals söfnuðust kr. 63.000 hjá liðunum tveimur.