1. mars 2011 |
Mottumars á ný - yfirskeggi og áheitum safnað
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ýtti „Mottumars“ úr vör við hátíðlega athöfn í Skautahöllinni í Reykjavík í gær. Mottumars er yfirskrift átaks Krabbameinsfélags Íslands varðandi karlmenn og krabbamein, þar sem hvatt er til árvekni og jafnframt safnað fé til starfsemi félagsins. Átakið var haldið í fyrra í fyrsta sinn og þótti takast mjög vel. Þennan átaksmánuð eru karlmenn hvattir til að safna yfirvararskeggi til marks um samstöðu í baráttunni, vekja athygli á krabbameinum karlmanna og um leið að safna áheitum. Smellið hérna til að fara inn á áheita- og áskorendasíðuna.
Bæði einstaklingar og lið geta tekið þátt í áheitakeppninni.
Ráðherrann varð í gær að notast við gervimottu enda mottumánuðurinn ekki byrjaður.
Hver verður duglegastur í mottusöfnuninni í Reykhólahreppi? Einhverjir eru að vísu svo fúlskeggjaðir fyrir að varla er á bætandi ...