Mótvægisaðgerðir við ríkisstjórnina!
Verandi nýkomin úr kjördæmaviku er þetta það sem kemur upp í hugann eftir fundi með sveitarstjórnarmönnum og heimamönnum í Norðvestur-kjördæmi. Kjördæmið er að mörgu leyti ólíkt innbyrðis hvað atvinnu og samgöngur snertir, en skilaboð og áherslur til okkar þingmanna voru gegnumgangandi þessi: „Leyfið því að standa og þróast áfram sem vel hefur tekist til og byggið áfram á þeim grunni þótt fyrri ríkisstjórn hafi komið því á legg, og takið á með okkur íbúunum í uppbyggingu innviða samfélagsins.“
Þannig hefst grein sem Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður sendi vefnum til birtingar undir fyrirsögninni hér fyrir ofan. Þar fjallar hún um nokkra þætti í málefnum kjördæmisins undir millifyrirsögnunum Menntun, Samgöngur, Sameining heilbrigðisstofnana og sýslumanns-embætta og Fjarskipti og orkumál, og loks Ríkið þarf að taka á með landsmönnum. Grein Lilju Rafneyjar má lesa hér í heild og undir Sjónarmið í valmyndinni vinstra megin.