1. apríl 2011 |
Mundi í Gröf jarðsunginn á Reykhólum
Guðmundur Sveinsson, Mundi í Gröf, andaðist á Dvalarheimilinu Barmahlíð á Reykhólum 24. mars, níræður að aldri. Hann verður jarðsunginn í Reykhólakirkju kl. 14 á morgun, laugardag, og jarðsettur í kirkjugarðinum á Reykhólum, þar sem hann verður í félagsskap margra systkina sinna. Hann var síðastur í þeim stóra hópi að kveðja þennan heim. Systkinin voru tólf og þar af komust tíu til fullorðinsára og náðu góðum aldri.
Mundi fæddist 11. ágúst 1920 á Hofsstöðum í Þorskafirði í Reykhólasveit. Faðir hans var Sveinn Sæmundsson úr Dölum og móðir hans Sesselja Oddmundsdóttir úr Bolungarvík.