Mynd af Stöðinni á Reykhólum frá því um 1950
Í tilefni af opna húsinu hjá Sveini Borgari og Guðbjörgu núna í dag, hvítasunnudag, á gistiheimilinu nýstandsetta í húsinu á Reykhólum sem á síðari árum hefur borið nafnið Álftaland, skal hér birt mynd af þessu sama húsi sem tekin var um 1949-1950 (mynd nr. 2). Húsið var lengi framan af kallað Stöðin, af skiljanlegum ástæðum; íbúðarhús og bækistöð Tilraunastöðvar landbúnaðarins í sauðfjárrækt.
Þetta er ein af miklum fjölda gamalla mynda sem Örn Elíasson læknir í Bandaríkjunum sendi Reykhólavefnum fyrir nokkrum árum og finna má hér og undir Ljósmyndir, myndasöfn - Gamlar myndir í valmyndinni vinstra megin. Örn er fæddur í Stöðinni á Reykhólum og alinn þar upp til 11 ára aldurs. Foreldrar hans voru Sigurður Elíasson tilraunastjóri og ljóðskáld og Anna Ólöf Elíasson (fædd Guðnason). Á myndunum sem þarna er að finna má bæði sjá fólk og mannvirki (þar á meðal fleiri myndir af Stöðinni) og öðru á Reykhólum og þar í kring á sjötta áratug síðustu aldar.
Á fremri myndinni sem hþm tók eru þau Guðbjörg og Sveinn Borgar í glerfínni setustofunni, tilbúin að taka á móti vinum og kunningjum og öðrum góðum gestum.
________________
Fylgist líka með á Facebooksíðunni Reykhólahreppur - Sveitarfélag