Tenglar

27. desember 2015 |

Myndagáta - konfektkassi í vinning

Hólabúð á Reykhólum gefur konfektkassa í vinning fyrir rétta ráðningu á spánnýrri myndagátu tengdri héraðinu. Þ.e.a.s. ef einhver nennir að glíma við hana! Lausnir berist í netfangið vefstjori@reykholar.is fyrir áramót, þ.e. fyrir miðnætti á gamlárskvöld. Dregið verður úr réttum lausnum ef einhverjar verða og niðurstaðan birt hér á vefnum þegar nýja árið er gengið í garð.

 

Ekkert þýðir að kvarta yfir því að gátan sé vitlaus eða neitt slíkt - málið er bara að ráða fram úr þessu akkúrat eins og það er!

 

Athugasemdir

Hlynur Þór Magnússon, umsjónarmaður vefjarins, mnudagur 28 desember kl: 00:34

Endilega alls ekki deila lausninni hér! Einn ágætur maður gerði það í ógáti, ég eyddi því út, en tók nafnið hans að sjálfsögðu niður! Sendið í tölvupósti, eins og kemur fram hér að ofan. – Þess má geta úr því að hér fellur ferð, að fyrsta lausnin barst liðlega einum og hálfum klukkutíma eftir að ég setti gátuna á vefinn. Gangi ykkur vel!

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31