9. mars 2014 | vefstjori@reykholar.is
Myndaveisla frá saltkjöts- og bókmenntaveislu
Um sextíu manns komu í hina árlegu saltkjöts- og bókmenntaveislu Lions á Reykhólum í fyrrakvöld. Þetta er svipað og í fyrra og verður að teljast góð aðsókn. Skáld kvöldsins að þessu sinni var Jóhannes Haukur Hauksson í Búðardal. Þórarinn Ólafsson í Stekkjarlundi tók fjölda mynda sem komnar eru í myndasyrpu hér á vefnum (Ljósmyndir, myndasöfn - Myndasyrpur í valmyndinni vinstra megin). Hér fylgja nokkur sýnishorn.