Tenglar

8. september 2013 | vefstjori@reykholar.is

Myndir frá afmælisgleðinni í Bjarkalundi

Myndir: Þórarinn Ólafsson.
Myndir: Þórarinn Ólafsson.
1 af 10

Ingvar Samúelsson frá Höllustöðum í Reykhólasveit varð sextugur fyrir nokkru. Eins og hér kom fram efndi hann af þessu tilefni til samveru eða pöbbakvölds í Bjarkalundi í gærkvöldi og þrátt fyrir arfavonda veðurspá komu eitthvað um fimmtíu manns til að samgleðjast honum. Fagnaðurinn heppnaðist afar vel. Myndirnar sem Þórarinn Ólafsson tók fyrir Reykhólavefinn tala sínu máli í þeim efnum.

 

Þegar nokkuð leið á samkvæmið annaðist Ólafur Bragi Halldórsson frá Múla (Gilsfjarðarmúla) músík fyrir mannskapinn fram á nótt. Harpa Eiríksdóttir á Stað sá um að vökva lífsblómin sem þarna komu saman eins og sjá má á einhverjum myndanna. Hér fylgja tíu myndir en miklu fleiri er að finna í tveimur myndasyrpum undir Ljósmyndir, myndasöfn - Myndasyrpur - Ingvar Samúelsson (1) og (2) í valmyndinni vinstra megin.

 

Athugasemdir

Björg Karlsdóttir, mnudagur 09 september kl: 21:52

Þetta var virkilega ljúf kvöldstund. Takk fyrir mig Ingvar.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31