20. mars 2016 |
Myndir frá fermingunni á Reykhólum
Ungmennin Brynjar Pálmi Björnsson, Ólafur Stefán Eggertsson og Sandra Rún Gústafsdóttir gengu innar, eins og það var kallað á fyrri tíð, í Reykhólakirkju í gær. Myndirnar sem hér fylgja voru teknar við það tækifæri og í fermingarveislu frændsystkinanna Brynjars og Söndru. Þetta var fyrsta fermingarathöfn sr. Hildar Bjarkar Hörpudóttur, sem tók við embætti sóknarprests í Reykhólaprestakalli fyrir skömmu.
Allar myndirnar nema ein eru fengnar með góðfúslegu leyfi á Fb-síðu Herdísar Ernu Matthíasdóttur, móður Söndru.
Fermingar í Reykhólaprestakalli vorið 2016