12. ágúst 2013 | vefstjori@reykholar.is
Myndir frá messunni í Flatey
Sem jafnan áður var kirkjan í Flatey á Breiðafirði þéttskipuð núna á laugardaginn við messuna sem sóknarpresturinn í Reykhólaprestakalli, sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir á Reykhólum, syngur þar á hverju sumri. Myndirnar sem hér fylgja tók Jónas Ragnarsson ritstjóri, bæði við guðsþjónustuna sjálfa og fyrir og eftir messu.
Önnur gömul kirkja í Reykhólaprestakalli þar sem messað er einu sinni á ári er kirkjan á Skálmarnesmúla í Múlasveit. Enda þótt staðurinn sé mjög afskekktur er alltaf stór hópur fólks sem sækir þær messur.
► Fróðleikur um Flateyjarkirkju á vef Framfarafélags Flateyjar