27. mars 2016 |
Myndir frá páskaeggjaleitinni
Páskaeggjaleitin í skógræktinni í Barmahlíð í gær „fór hið besta fram“ eins og stundum hefur verið komist að orði. Annað hvort væri nú! Talið er að eitthvað kringum hundrað manns hafi tekið þátt í þessum skemmtilega viðburði; veður nokkuð kalsalegt og aldeilis hressandi til útivistar.
Myndirnar sem hér fylgja tóku þær Herdís Erna Matthíasdóttir, Jóhanna Ösp Einarsdóttir og Sandra Rún Björnsdóttir. Röðin á myndunum er af handahófi.
O Ó og úbbsadeisí – páskaeggjaleit