26. janúar 2014 | vefstjori@reykholar.is
Myndir frá þorrablótinu 2014
Rétt tæplega 200 manns sátu þorrablótið í íþróttahúsinu á Reykhólum í gærkvöldi, átu þorramat sem Lionsfólk tilreiddi og framreiddi og fylgdust með margháttuðum skemmtiatriðum blótsnefndarinnar. Síðan var dansað fram til klukkan þrjú. Fjöldi mynda sem Þórarinn Ólafsson í Stekkjarlundi tók er kominn inn á vefinn (Ljósmyndir, myndasöfn - Myndasyrpur í valmyndinni vinstra megin). Nokkur sýnishorn fylgja hér.