Tenglar

8. mars 2015 |

Myndir frá tónleikum Svavars Knúts

Frá tónleikum og ljóðalestri Svavars Knúts. Ljósm. Gústaf Jökull Ólafsson.
Frá tónleikum og ljóðalestri Svavars Knúts. Ljósm. Gústaf Jökull Ólafsson.
1 af 12

„Nei, við áttum alls ekki von á svona góðri aðsókn,“ segir Harpa Eiríksdóttir á Báta- og hlunnindasýningunni á Reykhólum, þar sem Svavar Knútur var með tónleika í gærkvöldi og las auk þess upp úr ljóðabókum. Brandaraljóðabókum, eins og einhver sagði. „Það var setið á öllum stólum, hátt í fimmtíu manns sem mættu,“ segir Harpa.

 

Auk tónlistar og ljóða var kaffihlaðborð. Um það sáu, auk Hörpu Eiríksdóttur framkvæmdastjóra Báta- og hlunnindasýningarinnar, þær Aðalbjörg Egilsdóttir á Mávavatni og systurnar Aníta Hanna og Védís Fríða Kristjánsdætur á Stað.

 

Myndirnar sem hér fylgja tók Gústaf Jökull Ólafsson.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31