Myndir úr kynnisferð sauðfjárbænda
Tuttugu og sex manns í Sauðfjárræktarfélagi Reykhólahrepps brugðu sér fyrir nokkru í dagsferð í austanvert Húnaþing og fengu Svein á Staðarfelli í aksturinn. Við Gljúfurá á mörkum Vestur- og Austur-Húnavatnssýslu kom Magnús Sigurðsson bóndi á Hnjúki í rútuna og annaðist leiðsögn og gerði það frábærlega, segja ferðalangar.
Byrjað var á því að fara á Blönduós, þar sem Gunnar Tr. Halldórsson framkvæmdastjóri SAH og Gísli Garðarsson sláturhússtjóri tóku á móti mannskapnum. Þeir fóru með hópinn um allt sláturhúsið og síðan var boðið upp á kjötsúpu og fleira. Eftir það var farið í ullarþvottastöð Ístex og hún skoðuð.
Komið var í heimsókn á fjóra sveitabæi og þeir skoðaðir. Það voru Stóri-Dalur, Stóra-Giljá, Hof og Hnjúkur. Bændur tóku vel á móti starfssystkinum sínum vestan frá Breiðafirði og voru veglegar veitingar á borðum.
Myndirnar úr þessari vel heppnuðu og skemmtilegu ferð (röðin á þeim er hér af algeru handahófi) tók Herdís Erna Matthíasdóttir.