13. júlí 2008 |
Myndir úr sumarferð Breiðfirðingafélagsins
Eins og hér var greint frá var sumarferð Breiðfirðingafélagsins þetta árið farin að Reykhólum um fyrri helgi (27.-29. júní). Fjölmenni var í ferðinni og voru um 250 gestir í grillveislunni á laugardagskvöldið eða álíka margir og allir íbúar Reykhólahrepps eða tvöfaldur fjöldi íbúanna í þorpinu á Reykhólum. Á vef Breiðfirðingafélagsins er urmull mynda sem teknar voru í ferðinni og má skoða þær hér.