Tenglar

28. júlí 2016 |

Nær útilokað að halda malarvegunum við

Þjóðvegurinn um Ódrjúgsháls í Gufudalssveit, Djúpafjarðarmegin. Mynd: Jóhannes Jónsson - RÚV.
Þjóðvegurinn um Ódrjúgsháls í Gufudalssveit, Djúpafjarðarmegin. Mynd: Jóhannes Jónsson - RÚV.

Umferð hefur aukist mikið á því svæði sem heyrir undir Vegagerðina í Búðardal. Þar eru fjölfarnir malarvegir eins og um Gufudalssveit, Laxárdalsheiði og Skógarströnd á norðanverðu Snæfellsnesi. Sæmundur Kristjánsson, yfirverkstjóri hjá Vegagerðinni í Búðardal, segir að um þessa vegi fari nú um sex hundruð bílar daglega, sem er tvisvar sinnum það sem var fyrir fáeinum árum: „Þegar umferðin er orðin yfir þrjú hundruð bílar á dag, þá er orðið nær útilokað að halda þessu við sem malarvegum.“

 

Sæmundur segir skort á fjármagni standa í vegi fyrir því að lagt sé bundið slitlag. Undanfarnar vikur hefur Vegagerðin malarborið veginn um Gufudalssveit og unnið er að bótum á hluta vegarins um Laxárdalsheiði. Sæmundur segir mikla umferð hafa gert verkið erfiðara en ella.

 

Þetta kom fram í fréttum RÚV. Meira hér.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31