Næsti biskup með ræturnar í Reykhólasveit?
Sr. Agnes M. Sigurðardóttir, sóknarprestur í Bolungarvík og prófastur í Vestfjarðaprófastsdæmi (og þar með prófastur yfir Reykhólaprestakalli) fékk flest atkvæði í fyrri umferð biskupskjörs. Talið var í dag. Átta gáfu kost á sér og hlaut enginn hreinan meirihluta þannig að kosið verður um tvö efstu, sr. Agnesi og sr. Sigurð Árna Þórðarson. Sr. Agnes er dóttir sr. Sigurðar Kristjánssonar frá Skerðingsstöðum í Reykhólasveit, sem lengst af var prestur á Ísafirði og prófastur.
Sr. Sigurður faðir sr. Agnesar fæddist á Skerðingsstöðum í Reykhólasveit árið 1907. Hann var bróðir Finns Kristjánssonar á Skerðingsstöðum, sem núna er aldraður maður á Dvalarheimilinu Barmahlíð á Reykhólum. Margt afkomenda Finns og skylduliðs er búsett á Reykhólum.
Agnesarnafnið er úr Hjallaætt í Þorskafirði. Af þeirri ætt er einnig margt annað ágætt fólk þó að ekki verði talið nánar hér ...
Í minningargrein um sr. Sigurð Kristjánsson frá Skerðingsstöðum, föður sr. Agnesar, segir einn af kollegum hans:
Í Reykhólasveit eru smjörblettir handa sauðfé, ilmsterk og bragðmikil grös. Mér þótti prófasturinn sameina harðfylgi hins þolinmóða fjármanns og glaðværa rósemi kúabóndans, sem er bundinn af mjöltum tvisvar sinnum á dag allan ársins hring. Séra Sigurður var góður hirðir.