Tenglar

16. janúar 2015 |

Námskeið í gerð styrkumsókna

Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi gengst fyrir vinnusmiðju (námskeiði) í gerð styrkumsókna í Leifsbúð í Búðardal föstudaginn 23. janúar kl. 13-16. Þar verður farið yfir undirstöðuatriði í gerð umsókna um styrki í innlenda sjóði. Farið verður yfir undirbúning fyrir umsóknir og hvernig styrkumsóknir eru ritaðar. Að vinnusmiðjunni lokinni gefst þátttakendum kostur á skrifa umsókn og skila til leiðbeinanda innan 14 daga. Leiðbeinandi fer yfir umsóknina, rýnir hana og sendir til baka með upplýsingum um hvað var gott og hvað má bæta.

 

Skráning er á vef Símenntunar. Nánari upplýsingar gefur starfsfólk Símenntunar í síma 437 2390.

 

Leiðbeinandi er Bjarnheiður Jóhannsdóttir, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31