12. ágúst 2009 |
Námskeið í kennsluaðferðum sem henta fullorðnum
Námskeið fyrir þá sem hafa áhuga á kennsluaðferðum sem henta fullorðnum verður haldið á Ísafirði á mánudaginn kemur, 17. ágúst. Þátttakendur prófa, skoða og skilgreina ýmsar hugmyndir um árangursríkar náms- og kennsluaðferðir í fullorðinsfræðslu, hefðbundnar aðferðir jafnt sem óhefðbundnar, og hvernig þær henta mismunandi námsmarkmiðum og aðstæðum á vettvangi. Miðað er við að þátttakendur útbúi eigin möppu með aðferðum sem þeir hugsa sér að nýta í eigin kennslu. Umsóknarfresti lýkur föstudaginn 14. ágúst.
Kristín Sigurrós Einarsdóttir verkefnastjóri hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða hvetur áhugasama til að sameinast í bíla og skella sér á Ísafjörð.
Skráningarform er að finna á þessari slóð.