Tenglar

28. september 2010 |

Námskeið í sápugerð

Á námskeiðinu sem haldið verður í Búðardal á fimmtudagskvöld er greint frá því hvernig sápa verður til og hvað þarf af efnum og áhöldum við gerð sápu í föstu formi. Algeng aðferð verður kennd en fleiri nefndar. Farið er yfir nokkrar glærur og að því loknu er sýnikennsla þar sem framkvæmt er það sem farið var yfir. Allir eiga að geta búið til eigin uppskriftir að námskeiði loknu og þátttakendur fá sápu með sér heim. Síðasti skráningardagur er í dag. Núna í morgun vantaði fjóra þátttakendur til þess að lágmarksfjöldi væri kominn á námskeiðið.

 

Námskeiðið verður fimmtudagskvöldið 30. september kl. 19:30 til 22:00. Leiðbeinandi er Ólafur Árni Halldórsson. Verð kr. 5.900.

 

Upplýsingar og skráning í síma 437 2390 og í netfanginu skraning@simenntun.is.

 

Símenntunarstöðin á Vesturlandi

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31