Tenglar

23. október 2011 |

Námskeið og æfingar í fimleikum hjá Aftureldingu

Frá fimleikanámskeiðinu á Reykhólum.
Frá fimleikanámskeiðinu á Reykhólum.
1 af 11

Ungmennafélagið Afturelding í Reykhólahreppi fékk Gerðu Jónsdóttur til að vera með námskeið og æfingar í fimleikum í íþróttahúsinu á Reykhólum á föstudag, laugardag og sunnudag fyrir krakka allt frá fjögurra ára aldri og upp úr. Skipt var í tvo hópa eftir aldri og voru æfingarnar klukkutíma í senn fyrir hvorn hóp þessa þrjá daga. Börnin voru mjög ánægð þó svo að það hefðu alveg mátt vera fleiri strákar með.

 

Stjórn Aftureldingar þakkar Gerðu fyrir að koma og gera þetta að veruleika. Hver veit nema þessi heimsókn hafi hjá einhverjum tendrað neista sem síðar á eftir að verða eitthvað meira.

 

Smellið á myndirnar til að stækka þær.

 

Athugasemdir

Gerður Jónsdóttir, mnudagur 24 oktber kl: 10:41

Góðan dag,

Vildi bara þakka aftur fyrir mig, yndislegt að fá að koma og kenna svona frábærum krökkum :) Mikið af efnilegu fimleikafólki með mikinn áhuga. Alltaf velkominn að prófa fimleikatíma hjá mér ef þið eigið leið hjá.
Bestu kveðjur,
Gerður Jónsdóttir.

Hrefna Hugosdóttir, mnudagur 24 oktber kl: 17:48

En frábært framtak hjá ykkur, algjörir snillingar þessir krakkar

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31