Tenglar

2. maí 2010 |

Námskeið um próftækni og prófkvíða

Björn Hafberg.
Björn Hafberg.
Námskeið um próftækni og prófkvíða verður haldið á Hólmavík á morgun, mánudag kl. 17-20. Fjallað verður um mismunandi gerðir prófa, svo sem ritgerðir og krossapróf og hvað þarf sérstaklega að hafa í huga við hverja prófgerð. Skoðaðar verða mismunandi aðferðir við prófundirbúning, svo sem lestraraðferðir, tímaskipulagningu og sjálfsmat, m.a. með vinnu við kortlagningu hvers og eins í gegnum svokallaðan námshring. Einnig verður leitast við að greina helstu orsakaþætti prófkvíða og leiðir til að ráðast gegn honum.

 

Björn Hafberg náms- og starfsráðgjafi kennir á námskeiðinu sem verður haldið í Þróunarsetrinu á Hólmavík að Höfðagötu 3. Einnig verður hægt að fá einstaklingsviðtöl í náms- og starfsráðgjöf þennan dag og eru tímapantanir hjá Birni í síma 899 0883.

 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kristínu Sigurrós Einarsdóttur, verkefnastjóra Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða á Hólmavík.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31