Tenglar

3. nóvember 2008 |

Námskeið um verðlagningu útflutnings og þjónustu

Námskeið á vegum Útflutningsráðs um verðlagningu útflutningsvöru og þjónustu í samvinnu við KPMG og Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða verður haldið í Háskólasetrinu á Ísafirði á miðvikudaginn, 5. nóvember, frá kl. 13 til 17.  Námskeiðið mun fara fram í gegnum vefbúnað á sama tíma í Þekkingarsetrinu Skor á Patreksfirði og Grunnskólanum á Hólmavík.

 

Á  námskeiðinu verður fjallað um áhrif mismunandi aðferða á áætlaðan rekstrar- og efnahagsreikning. Lögð verður áhersla á að öll umfjöllun sé einföld og aðgengileg og mun allt efni og framsetning þess byggja á því að þátttakendur hafi fjölþættan bakgrunn og mismikla þekkingu á bókhaldi, rekstraráætlunum og ársreikningum.

 

Að loknu námskeiði ættu þátttakendur að vera betur undir það búnir að leggja raunsætt mat á hugmyndir sínar um verðlagningu og uppbyggingu þjónustuframboðs, hvað er hagkvæmt og hvað hlutirnir þurfa að kosta. Ferðaþjónustuaðilar eru sérstaklega hvattir til að nýta sér námskeiðið.

 

Námskeiðið er styrkt af Vaxtarsamningi Vestfjarða og er aðgangur ókeypis.

 

Skráning og allar nánari upplýsingar gefur Ásgerður Þorleifsdóttir hjá Atvest í síma 450 3053 eða á netfangið asgerdur@atvest.is.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31